Thursday, October 26, 2006
Tuesday, March 08, 2005
Monday, January 10, 2005
Hef nú ekkert verið að slá í gegn í bloggi síðustu vikur. Letinni einni um að kenna. Set kannski eitthvað inn í komandi framtíð. En er ekki í því stuði þessa dagana:) Lifið heil og hafið það sem allra best:)
Monday, November 22, 2004
Wednesday, November 17, 2004
Ætlaði að vera ofsalega séður í morgun og reif mig á lappir tiltölulega snemma til að fara með bílinn í umfelgun. Var mættur á einhverja hjólbarðaþjónustu kl 8:20. Það vildi þó ekki betur til en svo að ég var ekki sá eini sem hafði þessa hugsun og lenti ég því í þessari líka svakalegu röð. Og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið, og svo beið ég aðeins lengur. Þegar ég var búinn að bíða í 190 min eða 3 klst og 10 min kom loks að mér!!!! Það versta við þetta allt var að ég var innilokaður allan tímann því það voru bílar bæði fyrir framan og aftan mig og komst ég því hvorki lönd né strönd, þal var ekkert aftur snúið eða flúið eftir að ég fór í röðina þarna árla morguns. Allan bið-tímann var ég alveg að verða bilaður úr leiðindum. Það eina sem ég hafði mér til dægrastyttingar var að lesa aftan á geisladiskana í bílnum ásamt því að glugga í smurbókina, ekki skemmtilega bók þar á ferð og mæli ég ekki með þeim lestri. Svo til að bæta gráu ofan á svart var ég gjörsamlega að farast úr hungri ásamt því að mig vantaði bráð nauðsynlega að komast á WC.......Í kjölfar þessara lífsreynslu mæli ég sterklega með tímapöntunum þegar skipta á um dekk. Nú eða að aka bara um á heilsárs dekkjum og komast því þannig hjá svona ævintýri.
Tuesday, November 16, 2004
Fór í KB banka í kringlunni í dag og færði þeim öll þau gögn er þurfa þykja þegar maður fer í greiðslumat. Kl tæplega 18 fékk ég símtal frá þeim hvar mér var sagt að ég hefði staðist greiðslumatið, og ekki nóg með það heldur voru þau svo ánægð með strákin að ég kemst í einhvern "Sérkjara hóp", helvíti ánægður með það, aldrei verra að vera í náðinni hjá bankanum:) En það sem heillaði mig mest við þessi fyrstu kynni mín af þessem banka er þjónustan og hraðinn þarna innan dyra. Á innan við 6 tímum fór ég í gegnum greiðslumatið hjá þeim og var kominn með jákvætt svar. Svona á að gera þetta. Held að Rhodium staffið ætti að fara á sama þjónustunámskeið og KB staffið sækir. Þannig liggur þetta sem sagt þá, keallinn sem sagt orðinn stoltur íbúðareigandi......
Monday, November 15, 2004
Fór út í búð að versla í gær, sá að það voru komnar jólapiparkökur. Var að hlusta á útvarpið í dag, heyrði auglýsingu með jólalagi undir. Keyrði niður í bæ í dag, sá að upp er komið jólaskraut í Lækjargötu. Hvað er að gerast á þessu landi? Er ekki örugglega 15. nóv en ekki 15. des? Hvar endar þessi vitleysa? Ætli einhvern tímann verði svakalegt fjör á þjóðhátíð í Eyjum þegar flugeldasýning verður og kveikt verði á jólatréinu þar í bæ samkveldis? En ekki misskilja mig það er ekki að ég c eitthvað á móti jólunum, heldur skil ég ekki þennan asa í fóki að vera farið að huga að jólum þegar aðventan er ekki einu sinni byrjuð. Annars var dagurinn minn fínn. Slattinn allur af tíma fór þó í að huga að hjólbarðar og flegu málum hjá mér. Dýrt spaug að þrykkja svona á kanta, einhverjir rúmir tveir tugir af þúsunköllum. Fékk þennan líka fina bol frá Nonna og Ingibjörgu fyrir vöktunina á kofanum þeirra, takk fyrir það. Hitti Arnold í kvöld og hjálpaði hann mér dulítið í tölvumálunum fyrir eitt verkefni sem ég er að fara að skila og kláraði ég það núna í kvöld. Þungu fargi af mér létt þar. Alveg ótrúlegir þessir kennarar, ekki nóg með það að þeir séu með aukatíma (sem þeir by the way skulda okkur fyrir að hafa ekki komist á löngu fyrirfram ákveðnum tímum) kl 8 laugardagsmorgnum, heldur var verið að færa markaðsfræði tímann frá miðvikudegi yfir á föstudag. Og það með innan við 2 sólarhringa fyrirvara! En þann föstudag er Gunni einmitt að halda upp á afmælið sitt. Það er eins og þeir haldi að nemar eigi ekkert líf fyrir utan skólann og þeir geti bara hennt tímum fram og til baka eftir eigin þörfum, alveg óþolandi. En það er huggun harmi gegn að þennan tíma eru hóparnir að flytja verkefnin sín og því verður maður ekki af neinni kennslu.
