Friday, November 08, 2002

Ekki er hægt að segja að þetta byrji of vel hjá mér, þrír dagar liðnir og ekki svo mikið sem stafur kominn inn!!!!! Þetta tjáningarleysi skrifast alfarið á tölvuna mína, hún vill ekki hleypa mér inná internetið og þar af leiðandi er ekki hlaupið að því að hripa niður vel valin orð.
En nóg af afsökunum og tölvuörðugeikum, ég var að spila á Glaumbar í gærkveldi og var það einstaklega skemmtilegt. Ekki það að stemninginn og mætingin hafi glatt mig svona mikið (þó svó að bæði hafi verið í góðu lagi) heldur voru það þrír kampakátir piltar sem voru í svaðalegum fíling á dansgólfinu allan tímann. Það er svo sem ekki frásögufærandi, nema út af því að þeir voru svo gjörsamlega út úr takt við allt og alla þarna inni að eftir var tekið. Nokkuð augljóst var að þeir hafi notað annan (og töluvert sterkari) vímugjafa heldur enn mjöður og bakkus. Sem sagt þeir voru útúrdópaðir, vissulega geri ég mér grein fyrir því að svona mál eru mjög alvarleg og alls ekki til fyrirmyndar en það verður þó að segjast að þeir voru alveg drepfyndnir. Á gólfinu voru þeir einir í góðann klukkutíma og voru tilþrifin og hreyfingarnar þvílíkar að annað eins hef ég ekki séð. Þetta var eins og að horfa á kennslumyndband í tæk vondó á extra slow motion og á tímabili var eins og þeir væru svífandi mávar svo mjúkar og einkennilegar voru hreyfingar þeirra. Ég tók sérstaklega eftir því þegar að ég leit yfir salin að nánast hver einasti maður var að horfa á þá og má segja að þeir hafi verið hringamiðja athygglinar þarna inni dágóða stund. En svo kom fleira fólk að dansa og smátt og smátt hætti maður að taka eftir þeim, sem betur fer fyrir þá.

Tuesday, November 05, 2002

Jæja, þá er maður byrjaður á þessu blogg dæmi sem virðist vera að tröllríða landanum og heiminum þessa dagana. Hér inni getur þú / þið lesið það sem drifið hefur á daga mína uppá síðkastið og hefst nú ævintýrið.

Vaknaði frekar þreyttur (líkt og endranær) og er ekki frá því að ég c enn nokkkuð skemmdur eftir síðustu helgi sem er mjög fyndið vegna þess að ég drakk ekki deigan dropa að áfengi en var reyndar að vinna mjög mikið. Síðasta helgi hófst á spileríi á Glaumbar á fimmtudag, þar var slatti af fólki og ágætis fjör. Á föstudaginn fór ég svo á útgáfutónleikana hjá "Í svörtum fötum" og ekki nóg með það heldur var ég líka að spila í eftir á partýinu hjá þeim félögum. Þar var rosa skemmtilegt og var stemningin mjög góð og var það fjöldinn allur af áhugaverðu fólki ásamt slatta af Fm hnökkum. Síðar það sama kveld stóð ég svo bakvið spilarana á Victor og einnig á laugardaxkveldinu. Sunnudagurinn fór mest allur í slökun og leti og endaði svo á rólegu nótunum heima með Tinnu að glápa á video.