Monday, November 22, 2004

Er í próflestri þessa dagana og því lítt markvert um að rita......


Wednesday, November 17, 2004

Ætlaði að vera ofsalega séður í morgun og reif mig á lappir tiltölulega snemma til að fara með bílinn í umfelgun. Var mættur á einhverja hjólbarðaþjónustu kl 8:20. Það vildi þó ekki betur til en svo að ég var ekki sá eini sem hafði þessa hugsun og lenti ég því í þessari líka svakalegu röð. Og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið, og svo beið ég aðeins lengur. Þegar ég var búinn að bíða í 190 min eða 3 klst og 10 min kom loks að mér!!!! Það versta við þetta allt var að ég var innilokaður allan tímann því það voru bílar bæði fyrir framan og aftan mig og komst ég því hvorki lönd né strönd, þal var ekkert aftur snúið eða flúið eftir að ég fór í röðina þarna árla morguns. Allan bið-tímann var ég alveg að verða bilaður úr leiðindum. Það eina sem ég hafði mér til dægrastyttingar var að lesa aftan á geisladiskana í bílnum ásamt því að glugga í smurbókina, ekki skemmtilega bók þar á ferð og mæli ég ekki með þeim lestri. Svo til að bæta gráu ofan á svart var ég gjörsamlega að farast úr hungri ásamt því að mig vantaði bráð nauðsynlega að komast á WC.......Í kjölfar þessara lífsreynslu mæli ég sterklega með tímapöntunum þegar skipta á um dekk. Nú eða að aka bara um á heilsárs dekkjum og komast því þannig hjá svona ævintýri.

Tuesday, November 16, 2004

Fór í KB banka í kringlunni í dag og færði þeim öll þau gögn er þurfa þykja þegar maður fer í greiðslumat. Kl tæplega 18 fékk ég símtal frá þeim hvar mér var sagt að ég hefði staðist greiðslumatið, og ekki nóg með það heldur voru þau svo ánægð með strákin að ég kemst í einhvern "Sérkjara hóp", helvíti ánægður með það, aldrei verra að vera í náðinni hjá bankanum:) En það sem heillaði mig mest við þessi fyrstu kynni mín af þessem banka er þjónustan og hraðinn þarna innan dyra. Á innan við 6 tímum fór ég í gegnum greiðslumatið hjá þeim og var kominn með jákvætt svar. Svona á að gera þetta. Held að Rhodium staffið ætti að fara á sama þjónustunámskeið og KB staffið sækir. Þannig liggur þetta sem sagt þá, keallinn sem sagt orðinn stoltur íbúðareigandi......

Monday, November 15, 2004

Fór út í búð að versla í gær, sá að það voru komnar jólapiparkökur. Var að hlusta á útvarpið í dag, heyrði auglýsingu með jólalagi undir. Keyrði niður í bæ í dag, sá að upp er komið jólaskraut í Lækjargötu. Hvað er að gerast á þessu landi? Er ekki örugglega 15. nóv en ekki 15. des? Hvar endar þessi vitleysa? Ætli einhvern tímann verði svakalegt fjör á þjóðhátíð í Eyjum þegar flugeldasýning verður og kveikt verði á jólatréinu þar í bæ samkveldis? En ekki misskilja mig það er ekki að ég c eitthvað á móti jólunum, heldur skil ég ekki þennan asa í fóki að vera farið að huga að jólum þegar aðventan er ekki einu sinni byrjuð. Annars var dagurinn minn fínn. Slattinn allur af tíma fór þó í að huga að hjólbarðar og flegu málum hjá mér. Dýrt spaug að þrykkja svona á kanta, einhverjir rúmir tveir tugir af þúsunköllum. Fékk þennan líka fina bol frá Nonna og Ingibjörgu fyrir vöktunina á kofanum þeirra, takk fyrir það. Hitti Arnold í kvöld og hjálpaði hann mér dulítið í tölvumálunum fyrir eitt verkefni sem ég er að fara að skila og kláraði ég það núna í kvöld. Þungu fargi af mér létt þar. Alveg ótrúlegir þessir kennarar, ekki nóg með það að þeir séu með aukatíma (sem þeir by the way skulda okkur fyrir að hafa ekki komist á löngu fyrirfram ákveðnum tímum) kl 8 laugardagsmorgnum, heldur var verið að færa markaðsfræði tímann frá miðvikudegi yfir á föstudag. Og það með innan við 2 sólarhringa fyrirvara! En þann föstudag er Gunni einmitt að halda upp á afmælið sitt. Það er eins og þeir haldi að nemar eigi ekkert líf fyrir utan skólann og þeir geti bara hennt tímum fram og til baka eftir eigin þörfum, alveg óþolandi. En það er huggun harmi gegn að þennan tíma eru hóparnir að flytja verkefnin sín og því verður maður ekki af neinni kennslu.

Sunday, November 14, 2004

Mikið afskaplega var ég þreyttur þegar ég vaknaði í dag! Skil ekki alveg út af hverju þar sem ég tók mér nú frí á fös og var kominn í rúmið um miðnætti það kvöldið. Hitti hópinn minn í dag og svo gott sem kláruðum við verkefnið. Þungu fargi af mér létt þar. En það er svo sem enginn lognmolla framundan, annað verkefni sem ég þarf að skila á fim:( En svona er þetta bara. Annars þarf ég líka að láta fixa dekinn tvö sem ég stúttaði í gær, mikið rosalega var ég pirraður á því. Þoli ekki svona bílavesen eitthvað, ekki eins og maður kunni mikið í þeim málunum. Hafði það verk um helgina að passa dúndurkofan hjá Nonna og Ingibjörgu, sá til þess að Skonsan fengi næringu ásamt hús eftirliti. Tók reyndar eftir því í dag þegar ég var að næra köttinn káta að þau eiga líka fiska. Það nefndi enginn við mig að ég ætti að gefa þeim??? En þar sem ég gleymdi einu sinni að gefa fiskunum hans Ella bróðurs í heila viku á meðan allir voru á Mallorca þá hef ég svo sem engar heví áhyggjur af þeim yfir heila helgi.

Saturday, November 13, 2004

Tók mér frí frá spileríinu í gærkvöldi, aldrei þessu vant. En tók í staðinn daginn snemma í dag og skellti mér til Keflavíkur. Þar var tekið á verkefni í Fjárhagsbókhaldi. Kíkti við hjá m & p en þau eru reyndar í USA. Fór í skúrinn og fríkaði aðeins út á trommusettinu sem er þar og Elli notar með bandinu sínu. Það var helvítis fjör og ekki laust við að manni dauðlangi að fjárfesta í einu, en það gerist því miður ekkert á næstunni. Merkilegt hvað laugardagar virðast ekki vera mínir dagar! Eins og sést hér á blogginu hefur allur fjandinn farið úrskeiðist hjá mér og ég lent í hinu og þessu á þessum dögum. Og dagurinn í dag er enginn undantekning. Þegar ég ég var á leiðinni aftur til Reykjavíkur var ég svo óheppinn að keyra á kanntstein og sprengja hjá mér 2 dekk. Laugardagur til lukku hvað?????

Wednesday, November 10, 2004

Fínn dagur að baki, þrjú atriði sem því eru valdandi. Ætli stærsta fréttin sé ekki sú að íbúðarmálin eru komin blússandi ferð, svo got sem í höfn. Jakkinn minn flotti sem ég týndi um síðustu helgi er fundin! Fann hann á Pravda í dag, svo til að toppa allt þá fékk ég 8 í verkefninu sem ég var að skila í síðustu viku. Get því varla sagt annað en að ég c bara nokkuð sáttur í dag. Annars kom ég bara nokkuð miklu í verk í dag. Tók daginn sæmilega snemma og vaknaði kl rúmlega 8. og var kominn inná fasteignasöluna Akkúrat rúmlega 9.Kíkti svo í Smáralindina með Evu og Kolbrúnu. Eftir það fór ég í lunch með Gonz, Gunz og Arnoldi. Því næst tók ég 2 fundi, annan á Hótel Borg og hinn á Pravda. Skólinn tók svo við og átti hug minn allan fram eftir kvöldi.....


Tuesday, November 09, 2004

Allt að verða ga ga í þessa dagana. Þórólfur að hætta, Arafat orðinn grænmeti og allt vitlaust að gera hjá mér. Síðustu dagar hafa verið skemmtilegir enda slattinn allur að gera hjá kappanum. Er að koma Polo-inum í stand svo að Hr & Frú Gonz geti verslað hann. Einnig hafa íbúðarpælingar verið að koma sterkar inn. Þar að auki er maður náttúrulega í vinnu svo ekki sé minnst á skólann. 2 stór, spennandi og skemmtileg verkefni í gangi hjá mér núna þessa dagana. Skil í báðum fögum í næstu viku. Svo til að toppa þetta allt þá ætlum við Gonz að skella okkur í ræktina á morgun, taka # 2 í þeim málum. En það er nú bara gott mál, held að maður verði miklu frískari fyrir vikið. Annars eru jákvæðustu fréttirnar þessa dagana þær að eftir mikla leit þá fannst annar jakki (líkt og sá sem ég tapaði um síðustu helgi) þar sem ég verslaði hann og ætla ég því að láta það eftir mér að kaupa annan. Enda flíkinn með eindæmum flott og ódýr.

Sunday, November 07, 2004

Var að spila á Pravda í gær og einhver alveg hrikalega hallærislegur hnupplaði jakkanum mínum!!! Og það sorglega er að ég keypti hann á fimmtudag. Er alveg massa fúll út af þessu þar sem að þetta var mjög flottur jakki. Kostaði kannski engar fúlgur en þetta var síðasta kvikindið í minni stærð. Ekki nóg með það heldur er þetta í annað skiptið sem að ég tapa jakka síðan að ég tók við Pravda. En það var huggun harmi gegn að ég geymdi lyklana og veskið mitt inn á skrifstofu, þannig að ég labbaði bara á bolnum (í skíta kulda) út í bíl og hélt heim á leið strax eftir gigg, alveg svakalega fúll og pirraður. Afskaplega blankt fólk sem virðist skemmta sér þarna greinilega, maður ætti kannski að afnema miðasöluna?? Annars byrjaði kvöldið svo sem alveg ágætlega, hittumst á 101 Hótelinu nokkrir gaurar og átum saman. Heilsan eitthvað búin að vera tæp í dag, kvef og einhver leiðindi að plaga mig. Vona samt að það standi stutt við enda mikil annríki framundan.

Friday, November 05, 2004

Skellti mér á Ný dönsk vs sinfó í gær. Ekkert spes gigg þar fannst mér, fær núll gæsir af mörgum mögulegum. Þeas ég fékk aldrei gæsahúð allan concertinn sem er nokkuð slappt miðað við að ég fékk allavega 3 sinnum á Sálinni. Í kvöld er það Nylon concert í Smáralindinni og svo dj mennska frameftir. Hópavinna í gangi um helgina og nú er það mæting kl 13, sem betur fer:) Annars eru prófin farin að nálgast óðfluga og ekki mikið annað í boði heldur enn að læra og aftur læra næstu 4 vikurnar. Sálin að spila á Nasa og mig langar alveg rosalega að fara, en þar sem ég tek mér frí frá spilamennskunni í nóvember til að sinna skólanum verð ég að spila þessa helgina:(

Góða helgi...

Wednesday, November 03, 2004

Það var helvíti menningarlegur dagurinn í gær hjá mér. Fór fyrst og sá heimildarmyndina um Bubba Mortons í bíó, og var það ágætis skemmtun. Eftir það fór ég í hlustunar partí sem Jágúar hélt á Bar Bianco. Það var haldið í tilefni þess að þeir eru að gefa út nýjan disk. Annars er þetta bara nokkuð menningarleg vika hjá mér. Allt þetta í gær, Ný dönsk og sinfó á fimmtudag og svo Nylon á föstudag. Ætli maður skelli sér svo ekki bara á listasafnið á laugardag og kaffi mokka á sunnudag?

Monday, November 01, 2004

Held að ég hafi upplifað eitt það leiðinlegasta laugardagskvöld núna um helgina, síðan að ég tók við Pravda. Það fór einhvern vegin allt í taugarnar á mér, lýsingin leiðinleg, staffið að reykja á börunum, allt of kallt inná staðnum, kvöldið lengi í gang og svo til að toppa allt lentum við Gonz uppá kant! Það leystist nú samt en hann og Tútti Tæson gerðu svo allt vitlaust á Victor skömmu síðar, stuðlega séð þeas. Var nokkuð fullt tungl á laugardag? Sunnudagurinn var svo tekin snemma í lærdóm þar sem ég þurfti að hitta hópinn minn kl 11. Var nú ekkert allt of vel sofinn en maður harkaði þetta af sér. Hitti svo Bacharann síðdegis og kíktum við til Nonna og Ingibjargar uppá "Heimsenda". Þar var okkur boðið uppá dýrindis humar og viti menn, Atlinn smakkaði og líkaði bara vel. En eins og margur veit er ég lítið fyrir fóður úr sjónum. Heima hjá þeim hjónum fæddist svo prýðis góð hugmynd hjá okkur fjórum að partíi sem við erum að spá í að producera saman og halda eftir 2 mánuði.