Í dag er 31. ágúst, sem væri kannski ekki frásögufærandi nema fyrir það að í dag er eiginlega síðasti dagur sumarsins. Alveg með ólíkindum hvað þetta sumar þaut áfram tímalega séð. Ég man það eins og gerst hefði í gær þegar það var verslunarmannahelgin, þegar það var 17. júní, þegar það var Eurovision, þegar ég og Ásgeir tókum við Hressó og þegar það voru Páskar!! En tíminn líður hratt á gervihnatta öld og þegar það eru góðir tímar hjá manni, þannig að þetta hlítur bara að vera merki um gott. Fór annars að spá í því hvað stóð upp úr þetta sumarið og komst að því að það voru 4 hlutir. Í fyrstu er það náttúrulega Hressó. Get ekki sagt annað en að ég c mjög stoltur af störfum og útkomu okkar Ásgeirs Kolbeinz þar. Náðum að troðfylla kofann með röðum og öllu tilheyrandi langflestar helgar í sumar. Mjög flott stemmning og flott fólk er það sem er mér minnisstæðast þegar ég hugsa um þetta sumar á Hressó. Nú einnig stendur það upp úr að hafa setið og djúsað með Harrison Ford á Hressó í júlí, það var alveg magnað og mun renna mér seinnt úr minni. Ég eignaðist líka nýjan uppáhaldsstað á Íslandi í sumar, en það er Ásbyrgi lengst fyrir norð-austan, held ég hafi bara aldrei séð jafn fallegan stað á Íslandi og varð ég algjörlega heillaður þegar ég kom þangað. Það síðasta er að ég byrjaði að nota nýjann rakspýra líka í sumar, "hvaða rugl er þetta" kann margur eflaust að hugsa núna. En staðreyndin er sú, eins og það fólk sem mér stendur næst veit, að ég get verið með eindæmum vanafastur og íhaldssamur. Er til að mynda búinn að nota sömu lyktina í 13 ár!!! Já takk síðan 1991 hef ég notað sama spýrann, veit eiginlega ekki hvort það c góðs viti eða nett geðveila, nema að hvoru tveggja c. En hvað um það, Hressó-Ford-Ásbyrgi-Deep eru topparnir þetta sumarið hjá mér. Hvað stóð upp úr hjá þér?
Tuesday, August 31, 2004
Monday, August 30, 2004
Afskaplega óspennandi að lesa mitt blogg þessa dagana gæti ég trúað! Tala ekki um neitt annað en skólann og vinnuna. Það er reyndar svo mikið að gera í þessu tvennu hjá mér að það kemst vart annað að. Tæplega öfundsvert líf sem ég lifi, en mér finnst þetta þó mjög skemmtilegt. Lifi og hrærist í þessu stressi og hraða, ætli maður verði ekki bara kominn með magasár fyrir þrítugt? En hvað um það, búið að vera svakalega langur dagur, vaknaði rétt fyrir kl 7 og það var ekki nokkur leið fyrir mig að sofna aftur. Sem er mjög athyglisvert í ljósi þess að ég var nú ekki að slá nein Evrópu met í svefni um helgina, einhverjir 5 tímar hvora nótt minnir mig. En það var ekki að hefta mann neitt, skil nú ekki hvaðan maður hefur þessa orku, ekki eins og maður sé á kafi í hollu mataræði nú eða að æfa eða gera eitthvað þvíumlíkt heilsusamlegt. Ætli það sé ekki bara stressið og lætin sem halda manni svona á floti, svo myndi maður eflaust bara detta niður dauður ef þessu myndi linna. Nei nei, segi bara svona, en athyglisvert þó hversu miklu maður kemur í verk þegar maður er alveg að skíta á sig, þá fyrst byrjar heilinn og líkaminn að fúnkera. Merkilegur andskoti??? En hvað um það, ætla svo sem ekki að vera að velta mér upp úr þessu ég bara vinn og læri þangað til ég get ekki meir. Ég á 4 bíó miða sem gilda út ágúst, sem sagt síðasta séns að nota þá á morgun þriðjudag. Ef það er einhver þarna úti sem langar í bíó og langar að bjóða 3 vinum með þá er sá hinn sami hvattur til að hafa samband við mig og ég skal með glöðu geði gefa þessa miða, sé ekki fram á að ég nái að nota þá. Nú annars fleygi ég þeim bara, ekki mikil skaði skeður þar hvar ég fékk miðana fríkeypis. Farinn í bólið, hafiða gott.
Sunday, August 29, 2004
Skellti mér ásamt Gonz og Gunna á James Brown í gær. Fannst þetta nú ekkert svaðalegt gigg! Frekar flatt og ekkert nema einhver brass sóló og skræk öskur. Ekki það að það er kannski ekki hægt að búast við miklu meira af 71 árs gömlum manni sem er búinn að vera í brannsanum í hálfa öld. Fórum meira að segja út áður en tónleikunum lauk. Úr höllinni var haldið í afmæli niður á Glaumbar hvar Haffi Haff fagnaði með vinum og vandamönnum. Af Glaumnum var svo farið í annað afmæli því á Pravda hélt Aki pain upp á daginn, ásamt Hemma Billie Jean unanda. Af því loknu hóf ég svo að dj-ast á neðri hæð Pravda og spilaði til að ganga 6. Kíkti á Gonz inn á Kapital eftir spil og ekki laust við að það c bara nokkuð fyndið að hlusta á dýrið spila "Nínu" og álíka poppaðar blöðrur. Sérstaklega í ljósi þess að drengurinn var harðari en stál í gamla daga þegar hann var að dj-ast á klúbbum borgarinnar. Matarboð hjá Hafnfirsku hjónakornunum framundan og verður gaman að sjá hvað Gunni nær að hrista fram úr erminni í kvöld, enda strákurinn með eindæmum lipur í eldhúsinu. Lærdómur og slökun það eina sem planað er í dag annars, skilst að það c gott veður úti og aldrei að vita nema að maður viðri sig og skelli sér bara á línuskautana í dag. Var að landa díl við Traffic, sem er skemmtistaður suður í Kef, um daginn og hlakka ég mikið til að spila í heimabænum á ljósanótt.
Friday, August 27, 2004
Ekki laust við að svolítið c langt um liðið síðan að síða þessi var uppfærð, annríki af völdum skóla og vinnu þar um að kenna. Skólinn er sem sagt kominn á blússandi fullt, úffff svakaleg viðbrigði þar maður!!! Þetta byrjaði allt með látum á þriðjudag og nú verður sko ekki aftur snúið. Endalaus heimavinna og pælingar sem þessu fylgja, vitaskuld, og held ég hafi bara ekki svona mikið huxað og notað mitt heilabú í háa herrans tíð. Enda kannski líka kominn tími á að nota hausinn í eitthvað annað en að troða í hann Fm strípum og geli:) Pravda málinn líka komin á fullt og gríðarlegur tími sem í það fer svona til að byrja með, svo róast það allt þegar búið verður að "fín stilla" staðinn eftir mínu höfði. Hef fengið snilldar mann með mér í það project en það er enginn annar en Jón Arnar kokkur. Helvíti klár og skemmtilegur drengur þar á ferð og hlakka ég mikið til að takast á við þetta verkefni með honum. Er byrjaður að plana svaka partí heima hjá m & p í borg óttans. Það verður haldið á Ljósanótt, sem er einskonar mennigar nótt suðurnesjabúa, laugardaginn 4. sept. Búinn að bjóða vinum mínum að koma suður og heilsa uppá gamla settið, góðar undirtektir í gangi og c ég fram á hörku fjör þar og þá. That´s all folks, verðum í bandi fjandi.
Tuesday, August 24, 2004
Þá er fyrsti skóladagurinn búinn, var svona í styttri kanntinum, aðeins 1 klst. Mætti í seinna fallinu inní stofu, þótt ég hafi nú mætt 20 min fyrir tímann inní skóla, og lenti því aftarlega í bekknum. Ekki par sáttur við það enda "útsýnið" ekki fullnægjandi fyrir minn smekk þarna aftarlega á kantinum. Ætla að mæta snemma á morgun og ná stúku-sæti svo að maður sjái eitthvað annað en strípur og gráhár. Skellti mér í ræktina í dag, ræktaði nú eitthvað lítið annað enn leti, þeas fór bara í pottinn og eitthvað svoleiðis hanx. En það er breyting framundan hvar Gonz ætlar að fara að byrja að mæta með mér og hvur veit nema að við náum að peppa hvorn annan upp í smá hreyfingu, ekki veitir af allavega. Tók hörku funda syrpu í dag og talaði fyrir allan peninginn, mig skal ekki undra þótt ég fái nettar harðsperrur í trantinn á morgun! Mikið og skemmtilegt starf framundan í vinnunni og ekki laust við spenning hjá mér í þeim málunum. Er núna að klára að mixa vinnu og lærdóms aðstöðu hérna heima, er með hjúds skrifborð sem er algjör snilld að vinna við. Meira er það ekki, held ég!
Sunday, August 22, 2004
Þá er menningarnóttin búin og var vægast sagt allt brjálað í bænum í gær. Ég spilaði mitt síðasta kvöld á Hressó og heppnaðist kvöldið bara ágætlega. Spilaði í góða 5 tíma en var orðinn svolítið þreytur þarna undir restina. Hittumst heima hjá Gunna í gærkveldi, góður hópur og skemmtilegur og fórum við öll saman í bæinn. Skellti mér á Hárið með Gonz & frú á fös. Hrikalega flott sýning þar á ferð, takk fyrir miðana Gauji. Strembinn vika framundan, skólinn að fara á blind-fullt og þarf að huga að Pravda málum líka. Hef tekið þá ákvörðun að fá annan aðila til liðs við mig til að vera skemmtanastjóri með mér á Pravda, ekkert gefið upp að sinni um hvern ræðir, en uppljóstra því fljótlega. Ekkert meira athyglisvert í gangi í lífi mínu í dag og ætla því bara að ljúka þessu á snilldarsetningu úr Hárinu, Frið, kærleik, frelsi og hamingju.
Friday, August 20, 2004
Skellti mér á skólasetninguna í morgun. Það var bara fínt, líst alveg óhemju vel á HR. Allt rosalega "erlendis" þarna hjá þeim. Skemmtilegt líka að við erum 4 félagarnir ofan af Bifröst sem fórum allir í HR. Ég, Arnold, Axel & Gunni. Kíkti stuttan 101 hring í gær með Gonz, hann ekki búinn að vera á skerinu kalda í óratríð þannig að það þurfti að viðra kvikindið. Í kvöld er það svo "Sumar kokteill Andra & Bjössa" einhvers staðar niður í Nauthólsvík, þeir héldu geysilega vel heppnaðann Jólakokteil í des í fyrra, kúl koncept hjá þeim og verður vonandi jafnvel heppnað og Jóla-dæmið. Svo er það Hárið í strax eftir það (ofsalega stíf daxkráin alltaf hjá manni um og í kringum helgarnar) get ekki annað sagt en að maður c bara nokkuð spenntur að sjá þetta. Fór einmitt á Hárið 1994 í Óperunni. Jæja, nenni ekki að hripa meira niður, ætla að vinna smá og slaka svo á fyrir kvöldið. Over & out. . . .
Thursday, August 19, 2004
Þá er það orðið staðfest, ég er að fara að færa mig um set. Hætti á Hressó eftir næstu helgi og hef strax störf á öðrum skemmtistað. Get nú tæplega sagt að ég c að flytja mig langt, ætli þetta sé ekki svona 15 m flutningur því ég er að fara yfir á Pravda! Já takk kallinn orðinn skemmtanastjóri og dj þar á bæ. Hef störf þar aðra helgi. Get nú ekki annað sagt enn að mig hlakki bara þónokkuð til enda Pravda án efa einn sá allra flottasti í bænum. Kveð Hressó þó með örlitlum söknuði enda miklir hlutir búnir að gerast þar síðan að við Ásgeir tókum þar við. Svo er skólinn að fara á dúndrandi swing þannig að það er bara taumlaus vinna framundan. Gummi vinur minn kom heim frá Afríku í dag, helvítis fjör að hitta dýrið, fórum allir 4 vinirnir í lunch saman af því tilefni. Þar sem hann er nú gamall snúður var hann ekki búinn að vera sólarhring á skerinu þegar hann var búinn að hözzla sér djobb. Komið í bili. . . .
Wednesday, August 18, 2004
Nett ritstífla í gangi, leti, annríki og góðviðri að kenna. Svo sem ekkert svakalegt búið að henda mig síðan á laugardaginn. Kíkti reyndar örstutt á gamla vinnustaðinn minn (Hverfisbarinn) eftir spil á laugardagskvöldið. Hörku fjör þar, rakst á gamla kærustu sem er að fara að flytja út, gangi þér vel og góða skemmtun Tinna. Sunnudagurinn var svo tekin með tilheyrandi leti og sukkfóðri, skellti mér reyndar á línuskauta um kvöldið, fínt og frískandi sport. Fór í borg óttans í gærkvöldi (Keflavík) átti þar gott samtals við m & p og fór svo í heita pottinn, helvíti gott það. Tók svo lunch með gamla settinu á Villabar í dag, sem er held ég eini staðurinn á landinu sem selur hamborgara með gamla laginu, þeas með lauk, tómatsósu, sinnepi osfrv. Stíf funda-syrpa að baki í dag, breytingar í vændum vinnulega séð hjá mér, ekkert þó gefið upp fyrr en eftir undirskrift, sem verður væntanlega á morgun. Þetta er það helsta held ég???
A T L I
A T L I
Saturday, August 14, 2004
Held að ég hafi farið inní eitt af flottustu húsum sem ég hef nokkurn tímann séð í gær. Það var heimilið hjá þeim Ingibjörgu (Oasis eigandi) og Jóni Arnari (kokkur). Það stendur upp við Elliðarvatn og er með alveg frábæru útsýni. Við hittumst þar nokkrir strákar saman dreypuðum á bjór og höfðum gaman af. Fórum svo í kokteilboð um kvöldið í einhverri brillu-búð sem verið var að opna í gær, hef ekki höggmynd um hvað búðin heitir, en fínasta samkoma. Þaðan var svo haldið á Hard Rock sem var alveg ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega vegna þess að Bjarni töframaður kom og settist við borðið okkar og var að galdra alveg hægri vinstri þarna hjá okkur. Það er alveg með ólíkindum hvað maðurinn getur gert og ótrúlegt að horfa á hann framkvæma gjörsamlega óskiljanlega hluti með spilastokknum. Það voru samt gríðarleg vonbrigði eftir alla galdrana hans að hann skuli ekki hafa getað látið reikninginn okkar hverfa. Fór svo að Dj-ast á Hressó en það stóð stutt yfir þar sem ég hafði ákveðið að skella mér á ball með Vinum vors & blóma. Dj Balli tók því við kl 2 og ég skellti mér á Nösu. Þar var helvítis fjör og fullt af fólki. Svaf svo vel út í dag og skellti mér síðan á línuskauta með Ásgeiri og Svala yfir-hnökkum. Hitti líka Helga bróður og Eygló niður í bæ og við fórum á Sólon að snæða. Ætla að taka einn drykk með Siffa Fm-gæja og Tinnu Marínu söngkonu fyrir spileríi sem mun hefjast kl 24 á Hressó.
Friday, August 13, 2004
Gærdagurinn var ljúfur svo ekki sé meira sagt, vaknaði snemma og var að vinna eitthvað heima til hádegis og tók svo lunch með Tinnu skvísu. Eftir hádegið var bara slökun í sólinni þar til skólinn hófst kl 16 og fór ég meðal annars í Nauthólsvík með Andra og Gumma. Get nú tæplega sagt að það hafi verið gaman að sitja inní skólastofu þegar það er 20 stiga hiti úti, en maður verður bara að bíta á jaxlinn. Um kvöldið fórum við Ari í opnunarteiti hjá Oasis Smáralindinni, skemmtilegt partí og skemmtilegt fólk þar. Eftir það var haldið á vínbarinn og svo enduðum við Jón Arnar kokkur í drykk á hinum flotta Rex, kúl staður þar á ferð.
Vaknaði á hádegi í dag og er að taka lunch á Sólon þegar þetta er ritað.
Meira síðar.
Vaknaði á hádegi í dag og er að taka lunch á Sólon þegar þetta er ritað.
Meira síðar.
Wednesday, August 11, 2004
Dagsins í dag verður seint gleymt þar sem veðrið var með eindæmum gott. Hóf daginn á að fara með bílinn minn í skoðun og eitthvað svoleiðis bílatengt vesen, það gekk vonum framar og kom það mér skemmtilega á óvart hversu svaðalegu formi fákurinn er í. Tók svo nettan úti lunch með Gumma Hilmars og Evu vinkonu Ara. Eftir hádegi fór ég svo upp að Hvaleyrarvatni rétt fyrir ofan Hafnarfjörð með Gunna Eir og Eilísu. Þangað hafði ég aldrei áður komið og get ekki neitað því að ég hafi heillast örlítið af þessum stað. Stórt vatn, sandur fyrir börnin til að leika sér og stærsti kostorinn að mínu mati var það að það næst ekki GSM þarna! Svo að maður getur flatmagað alveg óáreitur. Þór Bæring vinur minn á Kiss Fm gaf mér miða á 50 cent tónleikana en ég nennti ekki að fara, fékk reyndar líka gefins miða á Pink en fór ekki??? Skil ekki hvað er að plaga mig en mér finnst það bara miklu meira spennandi að fara á línuskauta eða bara eitthvað út í náttúruna heldur en að fara inní risstórt hús, þegar það er 20° hiti úti, og svitna með örðum 5500 manns við dúndrandi hávaða.
Seinnipartinn fór ég á línuskauta út í Nauthóslvík, fór svo út að borða á Apótekinu og endaði svo í einum drykk á uppáhaldsbarnum mínum í Reykjavík, 101 Hótelið. Kom svo kaffibrúnn heim rúmlega 22 afskaplega sáttur við ný liðinn dag.
Seinnipartinn fór ég á línuskauta út í Nauthóslvík, fór svo út að borða á Apótekinu og endaði svo í einum drykk á uppáhaldsbarnum mínum í Reykjavík, 101 Hótelið. Kom svo kaffibrúnn heim rúmlega 22 afskaplega sáttur við ný liðinn dag.
Tuesday, August 10, 2004
Það er skemmtilegur kostur við starf mitt , sem skemmtanastjóri, hvað maður fer mikið á kaffihúsin í bænum ásamt því að þurfa að hitta fólk hér og þar til að ýmist taka stutt spjall nú eða bara langan leiðinlega fund. Í dag var skemmtilegur dagur sökum góðs veður og því hægt að sitja utandyra á kaffihúsunum. Tók 3 utan-dyra fundi í dag ásamt því að tylla mér í svolitla stund á Austurvöllum. Einnig skelltum við Ari okkur niður í Nauthólsvík sem var algjörlega stöppuð af fólki. Slökun framundan í kvöld og þarf svo að taka daginn á morgun snemma vegna anna.
Komið í bili,.,.,.,.,
Komið í bili,.,.,.,.,
Monday, August 09, 2004
Mánuudagur að kveldi komin og búið að vera alveg hrikalega hlýtt í dag. Hitinn um og yfir 20° og allt gott um það að segja. Tók lunch með Andra Gunn í dag og fórum við örlítið yfir svolítið plott sem við erum að skoða, meira um það síðar þegar og ef úr verður. Í kvöld skellti ég mér, aldrei þessu vant, í ræktina (hef ekki farið þangað í 6 mánuði ef minnið klikkar ekki) og tók bara þokkalega á því. Fór svo í pottinn og þáði þetta fína axlarnudd, ég mæli tvímælalaust með Nordica Spa. Nóg í bili, lærdómur og elhúsframkvæmdir í beisaranum framundan fram eftir kvöldi.
Sunday, August 08, 2004
Jæja ekki nema 638 dagar síðan að ég bloggaði síðast! Get nú ekki neitað því að hitt og þetta er nú búið að gerast hjá mér síðan 8. nóv 2002. Nenni svo sem ekkert að tíunda það hér en ætla þess í stað að skrifa um það sem er að gerast þessa dagana.
Var að dj-ast um helgina á Hressó. Góð stemmning og bæði kvöldin skemmtileg. Var eitthvað að rýna í bókaninar hjá mér og ef allt er rétt þá var ég að taka gigg númer 326 á laugardaginn! Úfff þvílíkt rugl hjá manni, alveg ótrúlegt að maður skuli hafa það að atvinnu að láta ölvað fólk dansa. Fór út að borða með 3 vinum á Enricos (vona að þetta sé rétt skrifað) í gærkveldi, góður matur og góð þjónustu og ekki dýrt. Þessi staður fær mín meðmæli. Fórum þaðan svo í Leikhúskjallarann en þar var einhver Bikíni keppni í gangi sem Ásdís Rán útlits-keppna-haldari # 1 á Íslandi hélt. Get nú ekki sagt annað en að þetta hafi bara heppnast nokkuð vel hjá henni, haldið á flottum stað, kúl tónlist, góð stemmning og allt bara frekar jákvætt. Sáum reyndar ekki úrslitin hvar við þurftum allir að fara að dj-ast hér og þar um bæinn. Þar sem það var Gay pride um helgina fannst mér ég verða að heimsækja einu samkynhneigðu maneskjunar sem ég eitthvað þekki. Svavar Örn og Danni eru alltaf jafn skemmtilegir heim að sækja og sýndu þeir mér nýjustu heimilismeðlimina, það voru 4 nýfæddir hvolpar og eiga þeir því 8 stk hunda í dag! Það er nú ekki hægt að segja annað en að heimili Svavars sé heldur betur búið að öðlast líf, í orðsins fyllstu merkingu, því að fyrir einu ári síðan bjó hann einn í þessari íbúð en í dag eru 10 líf þarna inni og geri aðrir betur.
Skólinn er að fara að hefjast af fullri alvöru núna síðar í ágúst og get ég ekki neitað því að ég finn til mikillar tilhlökkunar. Mér líst bara vel á HR og trúi ekki öðru en að þetta sé topp skóli. Hugsa að ég minnki eitthvað spileríið núna í haust þegar og ef álagið verður mikið í HR. Annars tvinnast vinnan mín og skólinn alveg glettilega vel saman, þannig að þetta ætti vonandi ekki að verða mikið vesen.
Meira verður það ekki í bili og hver veit nema að það líði færri en 638 dagar þangað til að ég setji eitthvað nýtt inn næst:)
Var að dj-ast um helgina á Hressó. Góð stemmning og bæði kvöldin skemmtileg. Var eitthvað að rýna í bókaninar hjá mér og ef allt er rétt þá var ég að taka gigg númer 326 á laugardaginn! Úfff þvílíkt rugl hjá manni, alveg ótrúlegt að maður skuli hafa það að atvinnu að láta ölvað fólk dansa. Fór út að borða með 3 vinum á Enricos (vona að þetta sé rétt skrifað) í gærkveldi, góður matur og góð þjónustu og ekki dýrt. Þessi staður fær mín meðmæli. Fórum þaðan svo í Leikhúskjallarann en þar var einhver Bikíni keppni í gangi sem Ásdís Rán útlits-keppna-haldari # 1 á Íslandi hélt. Get nú ekki sagt annað en að þetta hafi bara heppnast nokkuð vel hjá henni, haldið á flottum stað, kúl tónlist, góð stemmning og allt bara frekar jákvætt. Sáum reyndar ekki úrslitin hvar við þurftum allir að fara að dj-ast hér og þar um bæinn. Þar sem það var Gay pride um helgina fannst mér ég verða að heimsækja einu samkynhneigðu maneskjunar sem ég eitthvað þekki. Svavar Örn og Danni eru alltaf jafn skemmtilegir heim að sækja og sýndu þeir mér nýjustu heimilismeðlimina, það voru 4 nýfæddir hvolpar og eiga þeir því 8 stk hunda í dag! Það er nú ekki hægt að segja annað en að heimili Svavars sé heldur betur búið að öðlast líf, í orðsins fyllstu merkingu, því að fyrir einu ári síðan bjó hann einn í þessari íbúð en í dag eru 10 líf þarna inni og geri aðrir betur.
Skólinn er að fara að hefjast af fullri alvöru núna síðar í ágúst og get ég ekki neitað því að ég finn til mikillar tilhlökkunar. Mér líst bara vel á HR og trúi ekki öðru en að þetta sé topp skóli. Hugsa að ég minnki eitthvað spileríið núna í haust þegar og ef álagið verður mikið í HR. Annars tvinnast vinnan mín og skólinn alveg glettilega vel saman, þannig að þetta ætti vonandi ekki að verða mikið vesen.
Meira verður það ekki í bili og hver veit nema að það líði færri en 638 dagar þangað til að ég setji eitthvað nýtt inn næst:)
