Wednesday, September 29, 2004

Lítið um að vera á síðunni núna, enda lítið um stórræði. Frekar róleg vika í gangi hjá mér, rólegt að gera í vinnunni og skólinn svona frekar viðráðanlegur. Reyndar 2 verkefni sem ég þarf að skila og þarf að spila 3 svar um helgina. Tek fim og fös á Pravda held svo austur til Vík í Mýrdal á laugardag til að spila á Hótel hmmmm, bara man ekki hvað hótelið heitir núna rétt í þessu. Hótel Höfðabrekka, getur það verið, eitthvað svoleiðis minnir mig. Fór með úrið mitt í viðgerð í dag, sem væri kannski ekki frásögu færandi nema út af því að þetta er í annað skiptið sem ég geri það á þessu eina ári sem ég hef átt það! Í fyrra skiptið braut ég glerið og fór þá með það í viðgerð, það tók 3 MÁNUÐI og mæli ég því ekki með viðskiptum við Rhodium. Fór í dag í aðra verslun og málinu var reddað einn tveir og Bingó. Fékk mjög fyndið sms í símann minn í morgun. Það var úr einhverju númerið sem ég ekki þekkti og þar var spurt hvort mig vantaði ekki konu?? Svo var mér bennt á að hringja í eitthvað númer og þar myndi draumadísin bíða mín. Eftir nánari eftirgrenslan kom svo í ljós að þetta var stelpa sem ég kannast við sem var að senda mér og átti hún þá einhverja vinkonu sem vildi endilega komast í kynni við strákinn! Maður getur nú ekki annað en hlegið af svona "höstl aðferðum". Get nú tæplega sagt að svona virki á mig enda varð ekkert úr þessu. Er alvega verða létt geggjaður á tölvunni minni, eitthvað er henni kalt þessa dagana enda farin að frjósa í tíma og ótíma. Þó mest þegar ég er í tíma! Hugsa að ég fari nú að plata yfirmenn Zax til að blæða á mig nýjum grip. Hraðinn og þróuninn í þessum tölvubrannsa er svo hröð að mín 2ja ára gamla tölva er orðinn löggildur öldungur og efast um að ég get nokkurn tímann losnað við hana, ekki einu sinni þótt ég borgaði með kvikindinu! Jæja best að drífa sig í tíma.

Sunday, September 26, 2004

Alveg ótrúlegt hvað maður er alltaf eitthvað svo andlaus á sunnudögum. Eflaust ýmislegt sem þar spilar inní, uppsöfnun þreyta frá því í vikunni, slappleiki sökum mikillar vöku um helgina og öll vikan framundan. Og ekki hjálpar að ég þarf að skila verkefni í Fjárhagsbókhaldi á fös sem mér líst nú ekkert allt of mikið á. En burt séð frá þessu volæði var helgin skemmtileg. Fór í matarboð til Evu og Ara á föstudagskvöldið. Þar var mjög skemmtilegt og skemmtilegt að fylgjast með Antoni syni Evu. Þaðan var svo haldið í kringluna en þar var svakaleg tískusýning í gangi. Þetta var mjög flott og vel heppnað hjá þeim, flott show, flott fólk, flott stemmning og allt bara frekar erlendis. Úr kringlunni fórum við svo á Sólon en þar var eitthvað haustpartí í gangi. Það var líka mjög flott og vel heppnað. Eftir það fór ég svo á Pravda að dj-ast. Ég verð nú að gefa 10-11 búðunum kredit fyrir að starfrækja þessar 24 tíma búðir því að eftir spil á fös keyrði ég bara inní lágmúla og verslaði mér morgunmat, kl rúmlega 4 að nóttu til. Á laugardagskvöldið fór ég svo á Skúder tónleikana niður í laugardalshöll. Alveg svakaleg stemmiginn þar og alveg ótrúlega skemmtilegt. Verð þó að viðurkenna að ég er nú enginn mikill aðdáandi þýskrar tekknótónlistar og því síður finnst mér 35 ára gamlir aflitaðir gaurar með tribal tattú svalir. En þetta var hin besta skemmtun, geggjað sánd, sprengjur, reykur, leyser, flott ljósashow og allt bara frábært. Eftir tónleikana brunaði ég svo niður á Pravda og hóf að undirbúa eftir partíið því að sjálfsögðu komu Skúderarnir á Pravda. Þetta virtust allt bara vera frekar venjulegir gæjar og ekki mikið vesen sem fylgdi þeim. Fóru samt fram á að þeir fengu að hafa með sér eitt kælibox inn, ég samþykkti það en með þeim skilmálum þó að ég fengi að vita hvað væri í því, það var nú ekkert alvarlegt eða grugugt þar ofan í bara slatti af Redbull, sem er orkudrykkur sem er ekki seldur á Íslandi. Alveg ótrúlegt hvað íslenskt kvenfólk getur verið low þegar frægt fólk er annarsvegar, það var alveg hellingur að stelpum sem umkringdu þá og það var nú frekar mikil brókarsóttar lykt af þessu athæfi þeirra. Frekar vandræðarlegt fyrir ímynd hinar eðlilegu íslensku konu. Og allt bara út af því að þeir eru í frægri hljómsveit, það er ekki eins og þeir hafi útlitið með sér:) En jæja, svona er þetta bara. Hef þetta ekki lengra í bili......

Thursday, September 23, 2004

Úffff stærðfræði dagur dauðans í gangi. Var mættur niður í skóla kl 10 í morgun til að gera heimadæminn. Það stóð til kl 16:15 en þá fór ég í stærðfræðitíma, sem sagt 9 tímar af því fagi í dag takk fyrir!! Kannski full mikið af því góða. Er orðinn nett vankaður í hausnum eftir þessa viku og ætla að parkera bókunum í kvöld og á morgun. Ætla ekki svo mikið sem að hugsa um námið fram á laugardag. Fór í próf í gær sem gekk bara bærilega, þetta var reyndar krossapróf og eru þau ekki alveg efst á vinsældarlistanum hjá mér. Finnst betra þegar það eru "opnar" spurningar þar sem maður getur malað og raulað og betur fært rök fyrir máli sínu.

Wednesday, September 22, 2004

Er á fullu að fylla heilann af markaðsfræði og hef því lítinn tíma til að hammra inná síðuna mína. Ætla þó að koma því til skila að ég er kominn með nýtt gsm númer sem ég ætla að byrja að nota frá og með fimmtudeginum 23. sept. Nýja númerið mitt er 862 0700.

Monday, September 20, 2004

Laugardagurinn heppnaðist geysilega vel, svo ekki c meira sagt. Hittumst heima hjá trommaranum síkáta honum Hanna. Þar fór kokkurinn á kostum í eldhúsinum og frábær máltíð skófluð í sig. Hanni á eitt flottasta tónleika dvd safn sem ég hef nokkurn tímann séð held ég og var mikið glápt. Held reyndar að ég hafi sjaldan skemmt mér eins vel og þetta kveld, hittumst snemma og var hlegið fyrir allan peninginn fram til miðnættis. Nóttin gekk líka skínandi vel og var góð stemming á Pravda og spilaði ég langt fram undir morgun. Sunnudagurinn var svo tekinn með tilheyrandi slökun og lærdómi. Fór reyndar ekkert á kostum svo sem í lærdómnum en náði þó að læra fram yfir "samviskubitsmörkin". Lítt eitt annað planað í dag en að skólast ásamt örlitlu vinnu stússi. Sem sagt, fín helgi að baki og allt bara mjög jákvætt.

Saturday, September 18, 2004

Spilaði á félaxmiðstöðvarballinu í gær inní Hafnarfirði. Helvíti gaman og alveg með eindæmum skemmtilegt að spila fyrir táningana. Fór eftir það rakleiðis inná Pravda og spilaði þar svo fram eftir nóttu. Það var því frekar lúinn og þreyttur plötusnúður sem fór í bólið eftir 7 klst langt kvöld á bakvið spilarana. Var nú kominn með nett ógeð af vinsælustu lögunum sem ég tók margoft og það vottaði nú líka fyrir smá hellum í lok kvölds. Tók daginn í dag svo í markaðsfræði enda próf á næstu mið. Fór reyndar í smá bíltúr með Svavari Erni að skoða nýju íbúðina sem hann var að kaupa, hún er mjög erlendis líkt og allt hans. Í kvöld ætlum við að hittast nokkrir strákar og ætlar kokkurinn að elda fyrir okkur dýrindis máltíð, það verður gaman að fylgjast með enda strákurinn með þeim hæfari í þeim brannsanum. Svo er það bara fastir liðir eins og venjulega hjá mér á laugardagskvöldi eftir það, verð sem sagt að spila í alla nótt. Á morgun er það svo bara áframhald á undirbúningi fyrir prófið á mið. Bæ í bili.

Thursday, September 16, 2004

Var kominn á lappir kl 7 í morgun, AFTUR! Veit ekki hvað er að gerast, ætli maður c ekki bara farinn að eldast! Svei mér þá. Það er greinilega liðin tíð þegar maður gat bara sofið allan sólarhringinn. En það var reyndar þegar ég var 15 árum yngri. Tek þessu þó bara fagnandi að þurfa ekki að sofa svona mikið, það verður miklu meira úr deginum. Afkaplega lítið eitthvað sem ég hef fram að færa þessa dagana, lífið einhvern vegin orðin ein stór rútína. Nám og vinna, vinna og nám. Það er svona það eina sem er í gangi þessa dagana. Og því andskotanum erfiðara að hrippa eitthvað skemmti- eða athyglisvert niður og setja inná þetta blogg. Nennni ekki að brjóta heilann í leit að efni og hef því afráðið að hafa þetta bara stutt og óspennandi í dag:) En hendi inn um leið og eitthvað krafsandi dettur inn. Varið ykkur á vindinum.


Wednesday, September 15, 2004

Tók daginn óvenju snemma í dag og var risinn úr rekkju kl 7! Sem er nú bara nokkuð gott, ekki að það c eitthvað vandamál hjá mér að vakna á morgnana. En hef verið að staulast á iljarnar svona um níu leytið yfirleitt. Kveikti á Tv og fylgdist með "frumsýningunni" á hinni nýju Ruth Reginals. Finnst þetta nú svolítið leim að sjá þetta svona á íslensku, það tók Stöð 2 og félaga 6 mánuði það sem tekur erlendu fyrirmyndina 6 vikur að gera. En svona er þetta bara, ætla svo sem ekkert að velta mér upp úr þessu og hugsa að ég festi nú alveg svefn í kvöld. Það var að detta inn auka gigg í vikunni hjá mér. Er að fara að spila í félaxmiðstöð suður í Hafnarfirði á föstudaginn. Alltaf jafn gaman að spila fyrir táningana og ætla ég að passa mig að gera ekki þau herfilegu mistök sem ég gerði síðast þegar ég spilaði á svona balli. Þau voru að ég endaði ekki á vangalagi!!! Því miður átti ég ekki viðeigandi lag þá en ætla að leggja toppstykið í bleyti næstu daga og sækja mér nokkur "vanga"lög. Svona til að strákarnir geti beðið stúlkurnar um að vanga við sig og að ég geti klárað giggið með reisn. Annars er það bara lestur eitthvað frameftir degi í dag, ætla að nema markaðsfræði í. Lítið að gera í vinnunni í dag sem er bara fínt en svo byrjar törnin á morgun og stendur fram til kl 6 á sunnudaxmorgun. Frekar eðlileg helgi eitthvað framundan, lítið um einhverja mega skipulagningu og þess háttar. Sem er bara fínt, óhemju tími sem fór í síðustu helgi.

Quote of the day "ekki giftast til fjár, þú getur fengið lánað á betri kjörum"

Monday, September 13, 2004

Var að enda við að horfa á snillingana í 70 min. Held barasta að þetta c einhver sá albesti sjónvarpsþáttur sem hefur verið gerður í Íslensku sjónvarpi! Þetta eru stór orð hjá mér, já ég veit það. En þetta er bara svo svaðalega fyndið og svo mikil skemmtun í að horfa á þetta að ég er alveg til í að láta hafa þetta eftir mér. Held að RÚV ætti að taka þessa low budget þáttagerð á popptíví til fyrirmyndar og hætta framleiðslu á þessu afspyrnu lélega og úr-úr-kortinu dýra efni sem er þar á bæ. Er að kafna úr "útlandarleysi" þessa dagana. Hef ekki farið út fyrir landið síðan í fyrra og finnst það alveg off!!! Liggur við að ég fari í daxferð til Grænlands bara svona rétt til að hafa ástæðu til að skafa rykið af passanum. Annars eru nú engin endalaus tækifæri svona tímalega séð fyrir mig að hendast út fyrir landarmærin. Skóli virka og vinna um helgar. Er að fara í mitt fyrsta próf í næstu viku, get nú ekki annað sagt en að ég c bara drullu stressaður! Þrátt fyrir að þetta c mitt sterkasta fag, en maður verður bara samviskusamur við lesturinn alla þessa og næstu viku. Þá hlýtur þetta að takast. Hef ekki neitt meira merkilegt um að tala eða deila og læt því staðar numið að sinni. Lifið heil:)

Sunday, September 12, 2004

Glæsileg helgi að baki. Föstudagurinn fór allur í reddingar á hinu og þessu fyrir laugardagskvöldið. Fórum að borða á Thorvaldsen á föstudagskvöldinu ég Nonni og Biggi. Prýðis góður matur þar og flott þjónusta. Spilaði svo það sama kvöld á langflottasta staðnum í Reykjavík:) Pravda. Staðurinn var stappaður, að vanda, enda 500 þyrstir háskólanemar út um allt hús. Byrjaði að spila kl 22 og allt orðið vitlaust korteri síðar. Laugardagurinn var svo tekinn með trompi í náminu og var ég svo heppinn að njóta aðstoðar hennar Þórdísar og fórum við vel yfir stærðfræðina. Kann ég henni bestu þakkir fyrir. Seinnipart dagsins var svo tekin slökun með öllu tilheyrandi á Nordica spa og fórum við 3 vinirnir þangað. Eftir það fórum við að snæða á Galíleo sem var, eins og alltaf, mjög gott. Snillingurinn hann Einar sem á Pravda bauð okkur og fær hann stórann + fyrir það. Partíið heppnaðist svo með eindæmum vel. Húsið var stappað, endalaust veitt í mat og drykk og mjög góð stemmning í húsinu. Verð nú að segja að þetta er með flottari partíum sem ég hef producer-að og er ég bara nokkuð stoltur af þessu verkefni. Nóttin heppnaðist svo líka fjandi vel og spilaði ég langt fram undir morgun. Eftir spil fór ég svo á Kapital hvar ég og Gonz ætluðum að taka cabara saman heim. Það endaði þó ekki betur en svo að þar sátum við og tjöttuðum til kl 7 í morgun. Þetta var nú bara helvíti gaman því þarna voru hinir og þessir snúðar af nokkrum stöðum. Var ekki komin undir sæng fyrr en hálf átta í morgun en reif mig svo á iljarnar um eitt leytið. Get nú ekki sagt annað en að það votti fyrir smá þreytu, en sáttur er ég við liðna helgi og vona að þetta sé bara forsmekkurinn af því sem koma skal á Pravda í framtíðinni. Notalega vika framundan, aðeins 2 gigg þannig að ég hef góðan tíma fyrir skólann.

Thursday, September 09, 2004

Held að ég hafi upplifað mesta plögg dag ever í dag, þar sem það voru 5 viðtöl sem lágu á jafnmörgum miðlum. Við Nonni kokkur erum sem sagt sveittir þessa dagana við að koma Pravda á kortið og virðist það bara ganga ágætlega. Vorum á 3 útvarpsstöðvum í viðtölum í dag, Fm- Kiss - Mix, vorum einnig í Dv og að lokum í 17-7 á Popptíví. Þetta hlýtur bara að vera íslandsmet í að veita viðtöl, trúi vart öðru. Allavega í skemmtanabransanum, þessir kallar eins og Doddson eru nottla í öllum miðlum alla daga. Erum búnir að vera hrikalega duglegir við að bjóða í teitið og vonast ég eftir góðri mætingu, nú annars er ég búinn að ákveða að skemmta mér vel, hvort sem það verða 90 eða 590 sem mæta. Erum búnir að eyða svaka púðri og peningum í þessa veislu og á ég ekki von á öðru en að þetta verði hin fínasta samkoma. Helgin er annars lítið plönuð þarf þó að huga vel að náminu og hugsa að ég taka megnið af lau og helling af sun í það. Föstudagurinn fer að vísu mest allur í vinnuna þar sem það þarf alltaf að redda þessu og hinu fyrir svona geim. 495 manns bókaðir í húsið annað kvöld (föstudag) sem er langt frá því að vera slappt og má búast við mikilli ölvun og látum af þessum háskólanemum sem í húsinu verða. Enda lang flestir búnir að sitja að sötri síðan kl 17 um daginn, úfff hvað ég öfunda þau ekki. En háskólanemar eru samt hið alþýðulegasta fólk og eru þau uppáhalds "crowd-ið" mitt enda öll svo heilbrigð og lífsglöð. Var nú samt að fatta það rétt í þessu að ég er nú sjálfur háskólanemi þótt ég telji mig nú vart heima í þessum hópum, flest allir vel yngri en ég sjálfur þó inn á milli slægist einn og einn á svipuðu reki eða eldri......

Wednesday, September 08, 2004

Tók daginn snemma í dag og var byrjaður að vinna á bara frekar eðlilegum tíma. Miðað við svona venjulegt fólk allavega, en heldur óvenjulegum tíma miðað við veitingarbransann þar sem ekki er séns að ná í nokkurn mann eða að bóka fund fyrr en í fyrsta lagi kl 13. Var sem sagt búinn að taka 2 fundi kl 10:30 sem þykir nokkuð gott. Hitti meðal annars Yesmine dansara og erum við að vinna smá verkefni saman fyrir Pravda sem ég hlakka til með að fylgjast með. Fékk mér svo hádegis mat hjá Jóa Fel sem er staðsettur rétt hjá húsi mínu. Verð samt að segja að aldrei þessu vant smakkaðist kvikindið bara frekar illa! Hundgamalt og ógeðslegt pasta sem ég fékk hjá dýrinu og bara nokkur vonbrigði hjá mér. En það er nú yfirleitt allataf allt gott hjá þeim síðhærða þannig að ég huxa nú að ég gefi honum alveg annan séns. Var svo að stúdera markaðsfræði frá 13 til tæplega 16. Verð nú að segja að það er eitt af uppáhaldsfögunum mínum og ekki skemmir að kennarinn er alveg bráðskemmtilegur. Fór eftir skóla svo niður á Pravda en þar var einmitt verið að setja upp þráðlaust nett sem er algjör snilld því þá getur maður byrjað að vinna og netast þar að viti. Sit núna sveittur yfir stærðfræði og satt best að segja líst mér nú ekkert allt of vel á þennan viðbjóð. Nú þarf maður heldur betur að fara að nota á sér toppstykkið. En þolinmæðin þrautir vinnur allar, vona ég allavega!

Tuesday, September 07, 2004

Jæja þá er viðbjóðurinn að fara úr manni. Hélt áfram að taka eitthvað snilldar lyf sem heitir Paratabs eða eitthvað álíka. Er svo gott sem nýrr, eða svona næstum því það. Við Nonni kokkur tókum lunch með Jóni Gunnari Geirdal í dag, sem er einn ötulasti plöggari sem landið hefur alið af sér. Lænuðum upp 2 mjög flottum partíum sem við ætlum að vera með í okt og nóv. Ekkert gefið upp að sinni en verður gert "opinbert" fljótlega. Allt að verða ready fyrir partíð á laugardagskvöld, á von á svaðalegu geimi þar. Hvar allt verður vaðandi í veigum í fljótandi og föstu. Einnig verða söpræs skemmtiatriði, hjúkkur að þjóna, grúví mjúsík, og ég veit ekki hvað og hvað. Armani rumpaði af eldhúsinu í dag, duglegur drengurinn. Því ætti ekki að vera langt í að maður fari að dunda sér í eldamennsku. Meinfyndið að maður skuli hafa gaman að því eins og ég er nú lítið fyrir heimilisstörfin svona yfir höfuð. Svo að ekki c minnst á að þrífa bílinn,,,, guð minn almáttugur!

Monday, September 06, 2004

Var svo óheppinn í gærkveldi að krækja mér í kveisu. Lá í mókinu í alla nótt ýmist í svitabaði dauðans eða svo kallt að ég hélt ég væri að deyja. Fékk svo einhverjar töflur í morgun og er allur að braggast. Það er huggun harmi gegn að það er ekki skóli í dag, hefði ekki mátt við að missa neitt úr sökum gríðarlegs hraði í námi mínu. Er reyndar að fara uppí skóla núna kl 20 til að læra á vasareiknin minn!! Já þessar græjur eru orðnar svo flottar og fullkomnar að maður þarf að fara á námskeið til að læra á þessi tól. Það er af sem áður var þegar það eina sem maður þurfti að kunna á var + - og /. Þétt vika framundan hjá mér núna, 4 kvöld í skólanum, 3 gigg á Pravda, stórt partí á laugardag sem ég þarf að producer-a ásamt náttúrulega fullt af lærdómi ásamt hinum og þessum fundum og reddingum fyrir vinnuna. Lífið er reyndar að komast í fast form hjá mér, lærdómurinn orðinn partur af lífsmynstrinu og vinnumálinn fara vonandi að róast eftir því sem tíminn líður. Nú þarf maður bara að fara að koma líkamsræktinni fyrir og koma því inní rútínuna......

Sunday, September 05, 2004

Það er ekki laust við að maður sé örlítið timbraður í dag. Enda geysilega vel heppnað kvöld að baki. Ljósanætur partíið var skemmtilegt með eindæmum og hrikalega gaman að hafa farið suður með sjó með alla vinina. M & p komu fram við okkur líkt og konungsborin væru og var vel veitt í mat og drykk. Spileríið á Traffík gekk líka mjög vel og var algjörlega stappað í kofanum og gríðarleg stemmning. Gonzalez og Gunni tóku báðir í græjurnar og skemmtum við okkur allir mjög vel. Ég fór út af staðnum kl 6:30 og þá tók eigandinn við og hélt áfram að spila, ótrúleg djamm genin í suðurnesjafólkinu. Leti, sukkfóður og annar eins ólifnaður það eina sem planað er í dag en mikið framundan í vikunni. Pravda fagnar 1 árs afmæli um næstu helgi og um leið ætlum við Jón Arnar að halda "innflutnings" partíið okkar þar. . . . .

Friday, September 03, 2004

Var að spila á Pravda í gær, fimmtudag, í nýnemapartíi hjá Kennaraháskólanum. Það var fínt, góð stemmning og afar góð hlutföll milli kynjana strákum til handa. Þetta var bara helvíti gaman og langt síðan að ég hef spilað á fimmtudagskveldi, smá tjallens að ná fólki að dansa á þessum dögum hvar flestir sitja bara og sötra og eru kannski ekki alveg á þeim buxunum að stíga viltann dans. En það tóxd bara helvíti vel í gær, fullt af fólki á gólfinu og allt bara frekar jákvætt. Engin skóli í dag vann því svolítið, massa kvöld framundan á Pravda, 480 manns bókaðir í kofanum kl 21! Úfff það verður nú eitthvað. Svo er það stóri dagurinn á morgun, Ljósanótt í borg óttans. Mæting inní Hafnarfjörð í "hamingju húsið" kl 17 og svo verður haldið þaðan suður. Ætlum að grilla og dreypa á víni og bjór eitthvað frameftir. Förum svo væntanlega niður í miðbæ Keflavíkur hvar sogið verður í sig mennig og þess háttar. Hlakka líka svolítið til að fara að dj-ast fyrir suðurnesjabúa, komið gott tvö og hálft ár síðan að ég spilaði þar síðast, ef ég man rétt. Foreldrar mínir eru svo miklir öðlingar að það er búið að rýma öll rúm í húsinu þeirra, kaupa endalaust af mat og drykk og ég veit ekki hvað og hvað til að mér og mínum líði sem best hjá þeim. Kann þeim bestu þakkir þetta fyrir. Farinn að slæpast, góða helgi öll.

Wednesday, September 01, 2004

Ekki mikið um að rita í dag held ég. Var að skólast frá 11 til 17 í dag. Fór á bráðsniðugt námstækni námskeið. Lærði mikið þar held ég. Strembin helgi framundan, 3 gigg (fim-fös-lau), fyrsta helgi okkar Jóns á Pravda, stórt partí hjá m & p í borg óttans og náttúrulega endalaus lærdómur. Guð blessi manninn sem fann upp gsm-inn, bifreiðina, fartölvuna og alla þá hluti í okkar umhverfi sem hjálpa manni að spara tíma. Því án þeirra væri ég ekki neitt!