Friday, October 29, 2004

Fjárfesti í nýjum kagga í gær. Var og er ægilega lukkulegur. VW Golf heitir bifreiðin og er þetta í fyrsta skiptið á ævinni sem ég eignast alvöru bíl. Tókum saman löns í gær til að fagna, ég Armani, Eva Lín og herra og frú Gonzalez. Helgin verður undirlögð í vinnu venju samkvæmt ásamt því að glugga í bækur, jú og að rúnta á nýja bílnum:) 2 flott partí á Pravda um helgina, Halloween gleði í kvöld og Scent of a woman stelpu partí annað kvöld. Um að gera að mæta og sjá sig og sýna aðra;) Góða helgi.....

Monday, October 25, 2004

Eitthvað er maður latur að leggja inn stafrænar minningar þessa dagana. Lítið markvert um að vera, þannig lagað. Alltaf hið sama í gangi. Er að gera verkefni í markaðsfræði þessa dagana sem ég þarf að skila á fim. Þar af leiðandi verður lítið annað gert og því lítið af bloggi sett inn.

Tuesday, October 19, 2004

Gærdagurinn fór að miklum hluta til í að redda þessu og redda hinu. Gekk á milli skemmtistaða og fyrirtækja að safna saman græjunum mínum enda búinn að lofa þeim í hin og þessi verkefni. Mjög fyndið hvað þetta dj djobb færist út í hinar ýmsu áttir. Alveg ótrúlegust djobb sem maður hefur fengið í gegnum þetta eins og td að leika í auglýsingu, halda dj námskeið, vera skemmtanastjóri, vera vefstjóri og núna það nýjasta að vera með tækjaleigu. Og ekki nóg með það að skemmtistaðirnir í Reykjavík séu að fá gærjurnar mínar að láni heldur er dj-settið mitt á leiðinn til spánar núna um komandi helgi!! En maður kvartar svo sem ekki, ágætt að fá smá aur uppí kostnaðinn á þessum tækjum öllum. Verslaði mér miða á tónleika með Ný dönsk og Sinfó sem verða 4. nóv. Verð nú að segja að ég c frekar spenntur fyrir þessu enda hafa þessir tónleikar heppnast mjög vel í gegnum tíðina. Var nú frekar súr þegar ég fór út í gærmorgun, hvítt yfir öllu og orðið deginum ljósara að það er enn einn veturinn að ganga í garð á Íslandinu góða. Nú þarf maður að fara að vippa bláa kagganum yfir á nagla-kvikindinn svo maður verði ekki eins og ölvuð belja á svelli.

Sunday, October 17, 2004

Furðulegt hvað maður getur verið þunnur svona á sunnudögum án þess að hafa smakkað áfengis dropa alla helgina! Reykurinn, hitinn, svitinn, vökunæturnar og allt þetta fer ekkert allt of vel með mann og fara sunnudagar því oftar en ekki í að gera ekki nokkurn skapaðann hlut. Dagurinn í dag virðist þó ætla að vera smá undnatekning því ég hef bara komið hinu og þessu í verk. Er búinn að vera að stúdera eitt verkefni sem ég þarf að skila í þarnæstu viku. Er einnig búinn að vera að "taka til" í tölvunni minni. Skellti mér í bíó í gær með Línaranum, sáum Dodgeball sem er bara hinn prýðilegasta mynd. Skemmtilegt að skella sér svona í bíó en ég er alveg arfaslappur í þeirri grein. Er þessa dagana alveg að missa það yfir hljómsveitinni Thievery coporation, sem er eletróniskt band sem gerir geggjaða tónlist, eða framkvæmir flotta tónlist eins og Joey Love orðaði það.....Ég mæli með The Apprentice í kvöld, snilldar þáttur.

Thursday, October 14, 2004

Tók daginn frekar seint í dag, staulaðist ekki á lappir fyrr en kl 11! Sem er mjög ólíkt mér, einhver uppsöfnum þreyta klárlega farinn að gera vart við sig. Tók lunc með manninum með mörgu nöfnin, Rauði turninn, hjálmumrinn, Geikó, bróðir, Kolbeinz nú eða bara hans eiginlega nafn sem er Ásgeir Kolbeinsson. Ræddum hitt og þetta og átum hið bærilegasta fóður. Tók einnig fund með Jóni meðstjórnanda mínum á Pravda. Erum að producera partí sem haldið verður á lau. Hápunktur þeirrar gleði hlýtur að vera framkoma hins sívinsæla og útúrflotta glanstöffara Herberts Guðmundssonar. Hebbi er náttúrulega bara snilldin uppmáluð og fátt eins skemmtilegt og að horfa á kallinn koma fram. Hef nokkrum sinnum áður fengið hann til liðs við mig á hinum og þessum stöðum, Hverfiz og Glaumbar meðal annars, og hefur hann ávalt staðið fyrir sínu og vakið mikla kátínu hvar og hvenær sem er. Það er alveg ótrúlegt að fylgjast með crowd-inu þegar hann tekur "Can´t walk away", það verður gjörsamlega allt vitlaust.

Wednesday, October 13, 2004

Skellti mér á Jóa & félaga í gær og fékk þessa líka fínustu klippingu hjá kollega mínum úr tískudeildinni. Hann klikkar sjaldan kallinn (ef kall mætti kalla;)) og gekk ég ánægður þar út. Er þessa stundina að undirbúa mig fyrir markaðsfræði fyrirlestur og verkefni sem ég þarf að skila í næstu viku. Helvítis fjör í þessum áfanga enda með eindæmum skemmtilegur. Heyrði nýja sálar ópusinn í gær, get nú tæplega sagt að hann hafi slegið í gegn hjá mér. Perónulega finnst mér lítið frá sálverjum gott hafa komið í háa herrans tíð. En eins og margur veit er ég einn allra mesti sálar-fan sem landið hefur alið af sér. Það er kannski spurning um hvort lagasmiðir landsins ættu að sækja minna í sopann og einbeita sér meir að lagasmíðum, svona svo að þeir séu ekki að vakna í kjöllurum hér og hvar um borgina eftir fimmtudaxdjamm:) Var að klára samning við tónleikahaldarana sem eru með Prodigy. Að sjálfsögðu mæta þeir á Pravda eftir koncertinn og ætla að lyfta sér upp hjá okkur. Annars verður helgin tekin rólega hjá mér, ætla að reyna að rumpa þessu verkefni af svo að það liggji ekki á mér í upphafi næstu viku. Komið í bili, áfram Ísland.

Sunday, October 10, 2004

Fór í alveg svakalega flott matarboð á föstudagskvöldið. Það var haldið heima hjá Jóni Arnari kokk og Ingibjörgu. Þar var saman kominn rúmlega 20 manna hópur af þeirra vinum og vandamönnum. Tilefnið var það að kokkarnir voru ný komnir frá London hvar þeir leituðu í innblástur frá stórborginni. Þar af leiðandi var matarboðið eins konar "test drive" á nýju réttunum frá þeim. Það heppnaðist með glæsibrag og var allt frekar erlendis það kvöldið, ekki síst maturinn. Á laugardaginn brá ég mér svo til Njarðvíkur, skellti mér í sextugsafmæli, át fullt af kökum og heilsaði uppá fjölskylduna. Kíkti líka á litla bróður (sem reyndar er orðinn stærri en ég) keppa í körfubolta og fylgdist með Njarvík mala Val 163 - 55. Ótrúlega þægilegt að fara í svona veislur, þar gefst manni nefnilega tækifæri á að hitta og heilsa uppá fullt af ættingjum á sama stað á sama tíma. Og þar með getur maður afgreitt á mjög þægilegan hátt það að rækta tenglsinn! Alveg kjörið fyrir svona týpur eins mér sem finnst allar ferðir út fyrir 101 vera ferðalög. Eftir Suðurnesja rúntinn kíkti ég til Gunna og Eir og var svo heppinn að vera boðið í mat þar einnig. Það má því að segja að ég hafi verið orðinn vel saddur það kveldið og ekki laust við að Breiðholtið hafi stækkað þó nokkuð þennan daginn.

Tuesday, October 05, 2004

Jæja þá er fyrsti líkamsræktardagurinn búinn. Gekk bara bærilega, átakið byrjaði þannig að við Gonz vorum mældir út á alla kannta og svo var haldið í salinn eftir það. Hann átti vinninginn hvað fituprósentuna varðar en við tókum veðmál sem stendur til 15. dec og ætla ég að vinna það veðmál. Sá vinnur sem betri árangri mun hafa náð. Svo að sjálfsögðu fórum við í pottana og slöppuðum dulítið af. Tók eftir því í dag að það er að koma ný búð í hverfið mitt. Fyrir skemmtstu lokaði Bónus video sjoppa sem var hér í grendinni, því miður, og hvað haldiði að c að koma í staðinn? Búð með hjálpartækjum ástarlífsins!!!! C nú ekki alveg tilganginn að hafa hana þarna. Sorglegt líka að það c lengra að fara eftir mjólk, brauði og þess háttar nauðsynjavörum heldur en eftir dónadótti. Var að flytja aftur yfir í gamla rýmið mitt niður í Sæsundi. Gengur bara nokkuð vel og er ég svo gott sem búinn að koma mér fyrir. Armani hér um bil fluttur úr beisaranum en hefur alið mannið mikið í grafarvoginum uppá síðkastið. En maður kemur í mannsstað og hefur Atli slökkviliðs/lögreglu/bifvélavirki flutt í íbúðina hans Ara. Athyglisvert hvað það er mikið af "A" mönnum (Atli-Ari-Atli) sem viðloðnir eru þennan kjallara. Nettur AA fílingur í gangi enda við allir miklir sómamen þegar kemur að þeim málunum. Maður getur nú ekki neitað því að það er extra þreyta í gangi miðað við hvað klukkan er, maður er svo illa á sig kominn að ein hálftíma æfing hefur skert orku mína til muna í dag. Ef það er ekki merki um að maður þurfi að koma sér í form þá veit ég ekki hvað. Verð þó að vera þakklátur fyrir að vera ekki þéttari en raun ber vitni, þjálfarinn átti ekki til orð þegar ég sagði henni að ég væri ekki búinn að æfa að viti í 5 ár, fengi mér reglulega bjór og hugsaði ekkert um hvað ég setti ofan í mig. Held að ég geti þakkað vaxtarlagi móðurfjölskyldu minnar það að ég c ekki hlussmundur. Þar eru allir grannir og hávaxnir og vona ég að ég nái að vera þannig sem lengst. Er þó hættur að storka örlögunum og ætla að reyna hvað ég get að koma mér í form og hætta að treysta á "likamlega-fjöslskyldu arfinn".

Sunday, October 03, 2004

Fór austur í Vík í Mýrdal í gær og var að spila á Hótel Höfðabrekku. Þar var hörkufjör og stóð ég í heilar 6 klst á bakvið spilarana. Leigði mér þennan líka fína Avensis hjá fyrrum kollegum mínum á Hertz og tætti á honum austur fyrir. Þarna fyrir austan er verið að skjóta kvikmynd sem á víst að vera dýrasta mynd sem gerð hefur verið af íslendingum, einhver miljarður í kostnað. Mér skillst að í henni séu meðal annars hollívúd stjörnur og ég veit ekki hvað og hvað. Sjálfur er ég reyndar svo ómannglöggur á þessa leikara að ég þekkti ekki neinn þarna. Hins vegar kom einhver leikari sem lék í Glatiator í partí í herbergið mitt, það er það eina sem ég veit. Hef samt ekki hugmynd um hvað hann heitir. Held að ég hafi slegið Evrópu met í símamali á leiðinni austur. Var eitthvað hálf lónlí en bætti það upp með því að liggja í símanum megnið af leiðinni. Mig hlakkar nú ekkert rosalega mikið að fá reikninginn, maður getur kannski dílað við landsímann og spilað í einhverju staffa partíi hjá þeim uppí þetta:) Komandi vika er semi annrík. Eitt próf á fim og þarf maður sko heldur betur að læra fyrir það. Annars erum við Gonz að fara að byrja að æfa á morgun, já loksins lætur maður verða af því. Enda ekki seinna vænna. Byrjum kl 08:30 í fyrramálið og leggst þetta bara vel í mig. Ekki veitir af hreifa sig áður en maður hleypur endanlega í spik og breiðholtið veltur fram úr buxunum hjá manni. Svo er það bara að taka á mataræðinu, þá ætti maður að verða orðinn góður.....